 |
 
Fjórđungsmót hestamanna á Austurlandi verđur haldiđ á Iđavöllum á Hérađi dagana 28. júní – 1. júlí 2007. Ađ mótinu standa Hestamannafélagiđ Freyfaxi og Hrossarćktarsamband Austurlands — HRAUST. Framkvćmdanefnd mótsins er skipuđ stjórnarmönnum beggja félaganna. Formađur framkvćmdanefndar er Bergur Hallgrímsson.
Stjórn Freyfaxa:
Formađur: Bergur Már Hallgrímsson s. 847-5588 Netfang: bmh@vst.is
Varaformađur: Hallfređur Elísson s. 893-5413 Netfang: hallfredur@frumherji.is
Gjaldkeri: Gunnţórunn Ingólfsdóttir s. 847-0116/471-1810 Netfang: gi@fljotsdalur.is
Ritari: Guđrún Agnarsdóttir
Međstjórnandi: Einar Kristján Eysteinsson s. 863-3681 Netfang: eke81@torg.is
Varamenn: Sonja Krebbs og Jóhannes Ottóson
Stjórn HRAUST:
Formađur: Guđröđur Ágústsson s. 471-2133/863-8810 Netfang: gurridana@simnet.is
Hallgrímur Kjartansson, gjaldkeri
Gunnar Jónsson
Hans Jónsson
Ragnar Magnússon
Starfsmenn:
Framkvćmdastjóri: Jens Einarsson s. 862-7898 Netfang: jenseinars@simnet.is
Ritstjóri mótsskrár: Einar Ben Ţorsteinsson s. 896-5513 Netfang: gleraugun@simnet.is
Skemmtanastjórn: Prómó/Tómas Tómasson s. 511-2220 Netfang: promo@promo.is
Auglýsingar: Markfell/Birna Sigurđardóttir s. 511-4430 Netfang: birna.mark@itn.is
Yfirdómari: Sigurđur Ćvarsson s. 898-3031
ÁGRIP AF SÖGU FJÓRĐUNGSMÓTA Á AUSTURLANDI
Fjórđungsmót hestamanna á Austurlandi hafa veriđ haldin frá ţví áriđ 1957. Fyrstu fjögur mótin voru haldin á Hérađi. Fyrsta mótiđ 1957 var haldiđ í fallegu rjóđri í Egilsstađaskógi, í landi Sveins Jónssonar á Egilsstöđum, og dćmdir voru góđhestar og kynbótahross án afkvćma. Lýsingar frá Vođmúlastöđum var ţar sýndur og Ljónslöpp frá Ketilsstöđum stóđ efst í góđhestakeppninni og varđ ţriđja í flokki hryssna. Engin ţátttaka var ţá úr Hornafirđi.
Nćsta mót var haldiđ 1963, einnig á Egilsstöđum, í túninu hjá Pétri Jónssyni á Egilsstöđum. Sveinn og Pétur voru brćđur. Nú voru Hornfirđingar komir međ í slaginn. Ţar var Ljónslöpp frá Ketilsstöđum sýnd međ afkvćmum og Hrafn frá Árnanesi varđ efstur í flokki unghesta. Blesi frá Bólstađ stóđ efstur stóđhesta í eldri flokki.
Áriđ 1968 var mótiđ flutt á Iđavelli í Vallahreppi, ţar sem ţađ er haldiđ nú. Ţar voru sýndir stóđhestarnir Glói frá Ketilsstöđum, međ afkvćmum, Faxi frá Árnanesi og Ţokki frá Miđfelli. Einnig kom ţar fram gćđingshryssan Svala frá Brunnum, ţá 7 vetra, setin í dómi af Ingimar Bjarnasyni á Jađri. Austur-Skaftfellingar voru vel ríđandi og Svipur frá Jađri, Ingimars Bjarnasonar, og Högni frá Brunnum, Gísla Jóhannssonar á Brunnum, voru bestir gćđinga.
Fjórđungsmót var haldiđ í annađ sinn á Iđavöllum 1973. Ţar komu fram gćđingarnir Náttfari frá Fornustekkum, sem varđ efstur í B flokki, og Skúmur frá Stórulág, sem varđ efstur í A flokki. Einnig komu ţar fram stóđhestarnir Forni frá Fornustekkum, međ afkvćmum, Kolbakur frá Egilsstöđum og Skór frá Flatey. Nokkrar bráđefnilegar dćtur Sörla frá Sauđárkróki voru sýndar á mótinu, m.a. Elísa frá Stóra-Sandfelli, sem vakti mikla athygli á LM á Skógarhólum 1979. Knapi á Elísu var Ragnar Hinriksson. Nótt frá Beinárgerđi, Sörladóttir, stóđ efst unghryssna og fékk fyrstu verđlaun.
Fimmta fjórđungsmót hestamanna á Austurlandi var svo haldiđ á Fornustekkum í Hornafirđi. Ţar voru Náttfari og Skúmur aftur bestir gćđinga og ţađ setti svip á mótiđ ađ 17 hryssur voru sýndar međ afkvćmum. Efst ţeirra var Mön frá Flatey, móđir Skós frá Flatey. Ţetta mót er ţekkt sem hiđ mikla rigningarmót, en úrfellinu ţessa mótsdaga hefur veriđ líkt viđ náttúruhamfarir. Sagt var ađ sumir hefđu flotiđ á vindsćngum út úr tjöldum sínum og ţurfti lögregla og björgunarsveit ađ ađstođa fólk viđ ađ komast í húsaskjól.
Áriđ 1980 var aftur fjórđungsmót á Iđavöllum. Ţar kom fram stóđhesturinn Máni frá Ketilsstöđum, Jóns Bergssonar á Ketilsstöđum, föngulegur og gangfallegur foli. Vaka frá Lambleiksstöđum varđ efst eldri hryssna en dćtur Neista frá Skollagróf, Fjöđur frá Ketilsstöđum og Sera frá Eyjólfsstöđum, voru efstar í yngri flokkunum. Máni frá Egilsstöđum, setinn af Hrafni Vilbergssyni, velti Náttafara úr sessi í B flokknum og Sprettur Ingimars Sveinssonar hafđi betur gegn Skúmi í A flokknum.
Áriđ 1984 héldu Hornfirđingar fjórđungsmót á Fornustekkum í annađ sinn. Góđ kynbótahross komu fram á ţessu móti og settu ţau svip á hrossarćktina á landsvísu nćstu árin. Máni frá Ketilsstöđum fékk fyrstu verđlaun fyrir afkvćmi ađeins 9 vetra og öll afkvćmin voru frá Ketilsstöđum. Flosi frá Brunnum sló í gegn í flokki eldri stóđhesta og Hrefna frá Höfn skorađi hátt í flokki eldri hryssna. Öll voru ţau afkvćmi Ófeigs frá Hvanneyri. Sprettur Ingmars Sveinssonar sigrađi A flokkinn öđru sinni en efstur klárhesta varđ Ófeigur frá Skorrastađ í Norđfirđi. Kynbótahross frá Ketilsstöđum voru áberandi og má ţar nefna hryssurnar Hugmynd og Brynju frá Ketilsstöđum, sem voru á toppnum í yngri flokkunum.
Freyfaxamenn á Hérađi sáu enn og aftur um fjórđungsmót á Iđavöllum 1989. Ţar var í fyrsta sinn keppt í tölti og ţar sigrađi međ miklum yfirburđum Muni frá Ketilsstöđum, setinn af Trausta Ţór Guđmundssyni. Hann var einnig sýndur í kynbótadómi sem afkvćmi Báru frá Ketilsstöđum, og hlaut hann háan hćfileikadóm. Muni varđ síđar efstur í A flokki gćđinga á Landsmóti á Vindheimamelum áriđ á eftir, setinn af sama knapa. Flosi frá Brunnum var sýndur međ afkvćmum á mótinu og fékk 2. verđlaun. Ketilsstađahross voru áberandi sem fyrr og nú sigrađi í A flokki Örvar frá Ketilsstöđum, setinn af Bergi Jónssyni. Bergur sat einnig unghryssuna Vakningu frá Ketilsstöđum, sem vakti mikla athygli. Í B flokki var ţađ hins vegar Gauti frá Akureyri sem varđ hlutskarpastur, knapi Ragnar Hinriksson.
Hornfirđingar blésu enn til leiks á Fornustekkum 1995. Á ţessu móti var brotiđ blađ en ţar voru veitt peningaverđlaun í tölti upp á 100 ţúsund krónur, en slíkt hafđi aldrei veriđ gert í íţrótta- eđa gćđingakeppni fyrr. Á ţessu móti komu fram fjórir góđir stóđhestar sem vakiđ höfđu mikla athygli á landsvísu: Seimur frá Víđivöllum fremri, Kjarkur frá Egilsstöđum, Ţokki frá Bjarnanesi og Hjörvar frá Ketilsstöđum. Seimur varđ efstur í A flokki, Kjarkur í B flokki, Ţokki í flokki eldri stóđhesta og Hjörvar fékk einkunnina 10 fyrir skeiđ í flokki eldri stóđhesta. Á ţessu móti komu fram fyrstu afkvćmi Orra frá Ţúfu og gáfu tóninn um framhaldiđ. Einnig frábćrar klárhryssur eins og Kórína frá Tjarnarlandi og Gćfa frá Úlfsstöđum. Framtíđ frá Ketilsstöđum varđ efst í yngsta flokki hryssna. Ţar vakti og athygli mikill og góđur hestakostur frá Hans Kjerúlf á Reyđarfirđi. Átta rćktunarbú voru sýnd. Fjórđungsmótiđ á Fornustekkum 1995 var um ţađ vil helmingi stćrra en fyrri fjórđungsmót á Austurlandi í áhorfendum taliđ og hestakosturinn gaf tilefni til ađ ćtla ađ mikil gróska vćri framundan í hrossarćkt og hestamennsku í fjórđungnum.
Fjórđungsmótiđ á Iđavöllum 1999 varđ ţó ekki ţađ framhald sem vćnta mátti og var frekar smátt í sniđum. Greinilegt var ađ tíđarandinn, sem m.a. einkenndist af fólksflótta frá landsbyggđinni til höfuđborgarinnar, setti svip á fleira en daglegt líf og atvinnumál. En nokkrir jaxlar létu ekkert slíkt á sig fá. Hans Kjerúlf á Reyđarfirđi var mađur mótsins. Hann var efstur í B flokki og tölti á gćđingi úr eigin rćktun Laufa frá Kollaleiru. Hann var međ efsta stóđhest í öllum flokkum, ţar međ talinn Frakk frá Mýnesi, son Gusts frá Hóli, sem fékk 9,0 fyrir tölt 4 vetra. Rćktunarhópur frá Hans var kjörinn besti hópurinn af nokkrum sem sýndir voru. Bergur Jónsson var drjúgur sem fyrr, sýndi m.a. efstu hryssu í 4 vetra flokki, Snilld frá Ketilsstöđum, undan Hugmynd og Gusti frá Hóli, og Brynju frá Ketilsstöđum, sammćđra áđurnefndri Vakningu. Nýr rćktandi, Örn Bergsson á Hofi í Örćfum kvaddi sér hljóđs á mótinu međ efstu 6 vetra hryssuna, Ţrumu frá Hofi. Í A flokki varđ efst Skör frá Eyrarbakka, í eigu Ómars Antonssonar. Ung stúlka, Hafdís Arnardóttir, vakti athygli fyrir góđan árangur í unglingakeppni á Heldi frá Kollaleiru.
Í fersku minni er svo síđasta fjórđungsmót á Austurlandi, sem haldiđ var á Fornustekkum 2003. Mótiđ var fremur smátt í sniđum miđađ viđ stórmót hestamanna á landsvísu en tókst ţó vel í flesta stađi. Höfgi frá Ketilssstöđum varđ efstur í B flokki, setinn af Bergi Jónssyni. Glymur frá Kirkjubć, sonur Seims frá Víđivöllum fremri, stóđ efstur í A flokki, setinn af Sigurđi Sigurđarsyni. Örvar-Oddur frá Ketilsstöđum stóđ efstur í elsta flokki stóđhesta. Verulega kvađ ađ Ragnheiđi Samúelsdóttur sem knapa á mótinu en hún sýndi nokkrar mjög góđar hryssur, t.d. Gyđju frá Glúmsstöđum, Björk frá Beiđavađi, Perlu frá Glúmsstöđum og Andvöru frá Breiđumörk. Stjarna ţessa móts var ţó án efa 5 vetra hryssan Sćdís frá Stóra-Sandfelli, dóttir Huga frá Hafsteinsstöđum. Hún fékk 9,5 fyrir fegurđ í reiđ og fjórar níur ađ auki, fyrir tölt, brokk, stökk og vilja. Knapi var Hans Kjerúlf.
Nćsta mót í ţessari sögu er FM07, sem haldiđ verđur á Iđavöllum 28. júní til 1. júlí í sumar, 2007. Ađ ţessu sinni eru forsendur mótsins breyttar frá ţví sem áđur var, ţví hestamannafélögunum í Eyjafirđi og Ţingeyjarsýslum var gefinn kostur á ađ taka ţátt í mótinu, svo og öllum rćktendum á ţeim svćđum. Hér er um spennandi nýbreytni ađ rćđa og gaman ađ sjá hvernig til tekst. Af undirtektum hestamanna ađ dćma stefnir í skemmtilegt og spennandi mót og ţegar hafa veriđ nefndir til ţátttöku ţekktir gćđingar sem skarađ hafa fram úr á landsvísu. Sjáumst hress á FM07 á Iđavöllum 2007.
Góđa skemmtun!
|
 |
 |





|
 |