8. nóv. '07
FM07 sjónvarpsþáttur

Á sunnudaginn 11. nóvember kl. 16:00 verður sýndur þáttur um Fjórðungsmót Austurlands 2007 í Ríkissjónvarpinu. Hestamannafélagið Freyfaxi lét framleiða þáttinn sem er 35 mínútur að lengd. Umsjónarmaður er Ásgrímur Ingi Arngrímsson.

Þátturinn er léttur og skemmtilegur með myndum frá keppni og kynbótasýningum í bland við viðtöl við áhorfendur og knapa.

Allir áhugamenn um hestamennsku eru hvattir til að berja þáttinn augum á sunnudaginn.

Freyfaxi