 
FM07 BREYTINGAR Á DAGSKRÁ
Vegna þess að þátttaka á FM07 er meiri en búist var við hefur orðið að gera nokkrar breytingar á dagskránni. Ekkert dagskráratriði færist þó á milli daga.
Dagskrá byrjar klukkan 08.00 í stað 09.00 fimmtudag, föstudag og laugardag. Einnig byrjar dagskrá 09.45 á sunnudag í stað 10.00.
Opin stóðhestakeppni verður ekki tvískipt, þ.e. forkeppni og úrslit, heldur fer öll fram á föstudegi.
Forkeppni í tölti fer fram í tvennu lagi, áhugamenn sér og atvinnumenn sér. Einnig skal minna sérstaklega á knapafund sem verður í félagsheimili á Stekkhólma kl. 22.00 á miðvikudag.
MIÐVIKUDAGUR:
10.00 – 21.00 Æfingatímar á velli
22.00 Knapafundur
FIMMTUDAGUR:
08.00 B flokkur gæðinga, forkeppni
09.30 Kaffihlé
10.00 B flokkur, áframhald
12.00 Matarhlé
12.30 B flokkur, áframhald
14.00 Hæfileikadómar hryssna, 4 og 5 vetra
16.00 Kaffihlé
16.30 Hæfileikadómar hryssna, 6 v og 7 v og eldri
19.30 Matarhlé
20.00 Forval í tölti/tveir inn á í einu/Áhugamannaflokkur
21.00 Forval í tölti/tveir inn á í einu/Opinn flokkur
FÖSTUDAGUR:
08.00 Unglingaflokkur, forkeppni
09.45 Kaffihlé
10.00 Unglingaflokkar, áframhald
11.00 Ungmennaflokkur, forkeppni
13.00 Matarhlé
13.30 Hæfileikadómar stóðhesta, 4, 5 og 6 vetra
15.30 Kaffihlé
16.00 Úrslit tölt áhugamannaflokkur
16.45 Fljúgandi 100 m skeið
18.00 Matarhlé/Grill
19.00 Opin stóðhestakeppni
20.00 Tölt, meistarasýningar, 10 efstu
21.00 Skemmtidagskrá i tjaldi
23.30 Dansleikur í tjaldi
LAUGARDAGUR:
08.00 A flokkur gæðinga, forkeppni
09.45 Kaffihlé
10.00 A flokkur, áframhald
12.00 Matarhlé
13.00 Skemmtiatriði fyrir börn
13.15 Barnaflokkur, forkeppni
15.00 Kaffihlé
15.30 Yfirlitssýning kynbótahrossa, stóðhestar og hryssur
18.00 Ræktunarbú
19.15 Skemmtiatriði
19.30 Matarhlé
20.30 Tölt, A úrslit
21.15 Skemmtidagskrá í tjaldi
23.30 Dansleikur í tjaldi
SUNNUDAGUR:
09.45 Ungmennaflokkur, úrslit
10.30 Unglingaflokkur, úrslit
11.15 Barnaflokkur, úrslit
12.00 Matarhlé
12.45 Ávarp formanns LH
13.00 Hryssur, verðlauna afhending
14.00 Stóðhestar, verðlaunaafhending
15.00 Ræktunarmaður heiðraður
15.15 B flokkur gæðinga, úrslit
16.00 A flokkur gæðinga, úrslit
FJÖLSKYLDU- OG SKEMMTIDAGSKRÁ
Magni og Á móti sól eru orðnir ,,Risar” á Íslenskan mælikvarða og því óhætt
að fullyrða að aðalnúmerið á FM07 er það glæsilegasta sem í boði er í dag
Jónsi er einn af stórsöngvurum þjóðarinnar og því sannur heiður að kynna
þennan magnaða söngvara til leiks á FM07.
Örn Árna og Óskar Pétursson koma fram með glæsilega söngdagsskrá með
glaðbeittu ívafi og er beðið með mikilli eftirvænting eftir þessu atriði
þeirra félaga.
Kalli á þakinu er uppátækjasamur með afbrigðum hefur alveg einstakt lag á að
skemmta yngstu kynslóðinni með hreint stórkostlegum uppátækjum.
Hljómsveitin Austurlandið heldur uppi ekta austfirskri sveitaballastemmingu
eins og hún gerist best. Þar eru á ferðinni þeir Björn Hallgrímsson, Valgeir
Skúlason, Björgvin Harri Bjarnason og Tómas Tómasson.
Andri Bergmann Eskfirðingurinn knái úr Evróvisíon.
Tinna Björk Idol-stjarnan frá Egilsstöðum
Seyðfirðingurinn Guðný Pála úr GÍS er keppti í X-Factor s. l. vetur.
Allar nánari upplýsingar á www.promo.is
|