Hestamannafélagið Freyfaxi
700 Egilsstaðir

email: freyfaxi@freyfaxi.net

 

 
25. feb. '10
Mótaröðin hefst 17. mars

Nú líður að fyrsta móti í nýrri Reiðhöll á Iðavöllum. Sérstök nefnd hefur starfað undanfarna mánuði að undirbúningi sérstakrar mótaraðar og stigakeppni í reiðhöllinni undir merkjum Freyfaxa. Aðalstyrktaraðili er Fellabakarí.

Keppt verður þrjú fimmtudagskvöld og keppnisgreinarnar eru fimm talsins. Keppt er í einum flokki, og verða A- og B- úrslit í hverri grein. Keppt verður um stig, og verður sigurvegari mótaraðarinnar krýndur á lokakvöldinu.

Keppniskvöld eru sem hér segir:

17. mars - Fjórgangur
7. apríl - Fimmgangur og smali
28. apríl - Tölt og skeið

- meðfylgjandi er auglýsing vegna mótaraðarinnar.

Nefnd um mótaröðina skipa: Þórir Óskar, Dagbjört Diljá og Guðrún á Viðastöðum.